Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
Davíð Snorri Jónasson - aðstoðarþjálfari A landsliðs karla - KSÍ
Davíð Snorri Jónasson - aðstoðarþjálfari A landsliðs karla - KSÍ

Davíð Snorri Jónasson - aðstoðarþjálfari A landsliðs karla - KSÍ

01:31:13
Report
Davíð Snorri Jónasson aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla kom í Klefann og ræddi starfsemi KSÍ og hugmyndafræði þeirra varðandi uppbyggingu leikmanna frá unga aldri upp í atvinnumennsku.Davíð hefur starfað sem þjálfari hjá Leikni, allt frá yngri flokkum upp í meistaraflokk. Þá hefur Davíð þjálfað yngri landslið Íslands og er nú aðstoðarþjálfari A-landsliðsins, en hann er með KSÍ Pro gráðuna sem gerir honum kleift að þjálfa á efsta stigi.Davíð ræðir þróunina sem hefur verið hjá KSÍ síðustu ár, hvernig Lars Lagerback og Heimir Hallgríms lögðu grunninn að hugmyndafræðinni sem KSÍ er að vinna með og hvernig það er verið að byggja ofan á þann grunn og unnið að því að efla landsliðs starfið á öllum stigum. Við fáum að skyggnast inn í víðamikla starfsemi KSÍ, hvernig þau byggja upp íslensk landslið frá yngri leikmönnum til atvinnumanna. Hann deilir með okkur hvernig skipulagið er í æfinga- og keppnisferðum allt frá yngri flokkum og upp í A-landsliðin. Davíð talar mikið um mikilvægi þess að byggja upp sterka liðsheild, hvernig leikmenn læra helstu áherslur þar sem öll þurfa að vera á sömu blaðsíðu og svo margt fleira. Ef þú hefur áhuga á fótbolta, þjálfun og vita hvað þarf til að komast á toppinn þá ættir þú að hlusta. Samstarfsaðilar Klefans eru: Powerade, Lengjan, Auður, Hafið Fiskverslun og Nutrilenk. @davidsnorri@footballiceland@klefinn.is@siljaulfars

Davíð Snorri Jónasson - aðstoðarþjálfari A landsliðs karla - KSÍ

View more comments
View All Notifications