Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
Freyja Huld - Barnsfaðir hennar dæmdur fyrir brot gegn barni
Freyja Huld - Barnsfaðir hennar dæmdur fyrir brot gegn barni

Freyja Huld - Barnsfaðir hennar dæmdur fyrir brot gegn barni

00:04:05
Report
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Barnsfaðir Freyju hlaut tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi  í Maí 2020, fyrir tilraun til kynferðislegrar áreitni gegn barni í rituðum samskiptum á Skype. Í Desember 2021 var hann síðan sakaður um að hafa átt samskipti við 14 ára stúlku í gegnum samfélagsmiðla. Hann hafi sótt hana í heimhúsi og frelsisvipt stúlkuna í þrjá klukkutstundir þar sem hann meðal annars nauðgaði henni. Freyja var sjálf þolandi sem barn og segir mál barnsföður síns vera erfitt fyrir sig og börnin.   Freyja lýsir því í þættinum þegar tálbeitan hringir í hana um nóttina og sendir henni mynböndin og samtölin milli barnsföður hennar og það sem átti að vera 13 ára stelpa. “Mér leið skelfilega því mér fannst hann hafa svikið mig með því að vera inná einkamál og svo var hann þarna að tala við einhvern sem hann hélt að væri 13 ára gömul stúlka” segir Freyja í þættinum. “Ég tók þessu bara þannig að […] Þetta er rétt eftir að ég slasast og ég er ekki búin að vera nóg”  segir hún. Freyja og barnsfaðir hennar slitu sambandinu eftir fyrsta brotið en héldu þau áfram að búa saman. “Auðvitað þykir mér vænt um þennan mann, hann gaf mér barnið mitt og ég hef ekkert val. Ég Þarf að vera í samskiptum við þennan mann, sama hvað hann gerði” segir Freyja.   Hún gagnrýnir kerfið og segir barnavernd ekki hafa haft samband við hana eftir að barnsfaðir hennar fékk dóm fyrir að brjóta á barni. Er eðlilegt að maður sem sakaður er um brot gegn barni umgangist börnin sín? Hvernig á að miðla upplýsingum til barna hans?

Freyja Huld - Barnsfaðir hennar dæmdur fyrir brot gegn barni

View more comments
View All Notifications