Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
Misnotaður af bróður sínum
Misnotaður af bróður sínum

Misnotaður af bróður sínum

00:10:00
Report
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Vorið 2016 óskaði barnaverndarnefnd að lögreglan tæki til rannsóknar langvarandi ætluð kynferðisbrot drengs sem hafði greint sálfræðingi frá kynferðislegum athöfnum með yngri bróðir sínum, við köllum hann Pétur. “þetta var eins og að taka jörðina af bakinu á mér” segir Pétur og bætir við að það hafi verið mikill léttir þegar bróðir hans hafi ákveðið að segja frá kynferðisofbeldinu. Pétur segir frá því að hann hafi verið lagður í mikið einelti á þessum tíma og hafi ekki þekkt neitt annað en að líða illa. “Maður fattar bara ekki hvað þetta er algjörlega óeðlilegt og ég í rauninni fattaði það ekki fyrr en 2017” segir hann í þættinum og greinir frá því að hann hafi sótt mikið í vímuefni eftir að þetta komst upp. Einna erfiðasta, segir Pétur, er að hugsa til þess að fjölskyldan gæti sundrast vegna málsins en málið var aldrei rætt heima fyrir. “Fyrir mér var hann bara veikur og mér finnst hann ekki eiga neitt illt skilið” segir Pétur og bætir við að hann vilji halda fjölskyldunni saman. Pétur vill vekja athygli á afleiðingum kynferðisofbeldis en í dag glímir hann við þunglyndi og áfallastreituröskun. Hann segir Pieta samtökin hafa bjargað lífi sínu og hann sé fyrst og fremst að læra að lifa með þessu og skilja sjálfann sig.

Misnotaður af bróður sínum

View more comments
View All Notifications