Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
82. Marta Birna
82. Marta Birna
00:56:41
Report
Marta Birna Baldursdóttir er einstæð móðir og sérfræðingur og verkefnisstýra í kynjaðri fjárlagagerð í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.Hún spjallar hér við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breitt um foreldrahlutverkið og upplifun sína við að afla sér þekkingar á því sviði, sem og hvernig er að vera í fullu starfi og halda öllum boltum á lofti sem einstætt foreldri með litla aðstoð.Þá bregður á góma jafnframt hvort rétt sé að stefna á einhvers konar heimgreiðslur til foreldra með gleraugum kynjaðrar fjárlagagerðar til að leysa leikskólavandann, hvernig upplifun hennar er í vinnunni af því að vinna í teymi sem styður við hvert annað í foreldrahlutverkinu og hvernig hún hefur stutt við umgengni barnsföður síns við barnið þeirra með góðum árangri.Frábær þáttur að venju!
View more comments
View All Notifications