Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
23. Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar
23. Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar

23. Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar

01:19:31
Report
Gestur okkar að þessu sinni er Linda Heimisdóttir. Linda er með MA og doktorsgráðu í málvísindum frá Cornell háskóla. Linda hefur áralanga reynslu úr máltæknigeiranum en áður en hún tók við núverandi starfi, starfaði hún hjá alþjóðlega fyrirtækinu Appen, sem sérhæfir sig í söfnun og merkingu gagna fyrir máltækni og gervigreind. Linda gekk til liðs við Miðeind, sem er leiðandi hugbúnaðarfyrirtæki á sviði máltækni og gervigreindar, í byrjun árs 2023, þá sem rekstrarstjóri fyrirtækisins en hefur gengt stöðu framkvæmdastjóra síðan í júní. Í þættinum ræða Hildur og Linda meðal annars: Hvernig lífið leiddi hana áfram í málvísindin og síðar í máltækni Námsárin í Cornell háskólanum í New York fylki Störfin hjá Appen þar sem hún vann m.a. verkefni fyrir Microsoft Ákvörðunina um að flytja til Íslands, til að starfa við íslenska máltækni, eftir 15 ára búsetu í Bandaríkjunum Byltinguna sem hefur orðið í máltækni með tilkomu Chat GPT Gefandi samstarf Miðeindar við Open AI Styrkinn frá Evrópusambandinu til gerðar gervigreindarmállíkans þar sem evrópsk gildi eru höfð að leiðarljósi Hvað morgunhlaup og sund eru endurnærandi á milli þess sem hún kennir sjálfri sér að spila á píanó Linda minnist á hlaðvörp sem hún mælir með: Hard Fork This American Life Radio Lab Explo Word Game er appið frá Miðeind sem Hildur minnist á að nota Líkaði þér við þáttinn og viltu heyra meira? Smelltu á follow á þinni uppáhalds hlaðvarpsveitu. Fylgdu Vertonet á samfélagsmiðlum: LinkedIn Facebook Instagram Um hlaðvarpið Stjórnandi er Hildur Óskarsdóttir Styrktaraðilar þáttarins eru Sýn og Geko

23. Linda Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Miðeindar

View more comments
View All Notifications