Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
19. Helena S. Jónsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla
19. Helena S. Jónsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla

19. Helena S. Jónsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla

01:00:10
Report
Í þessum þætti bjóðum við velkomna Helenu Sveinborgu Jónsdóttur sem er meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla í New York. Helena er með tvær BS gráður frá Háskólanum Reykjavík, í vélaverkfræði og tölvunarfræði. Undanfarna mánuði hefur Helena starfrækt ada_konur aðganginn á Instagram þar sem konur í hugbúnaðargeiranum segja frá degi í lífi sínu sem hefur vakið verðskuldaða athygli og varð til þess að hún fékk á dögunum bæði styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar og var tilfnefnd til Nordic Women in Tech Awards. Í þættinum ræða Hildur og Helena meðal annars: • Hvað varð til þess að hún byrjaði í heilbrigðisverkfræði en kláraði vélaverkfræði og tölvunarfræði • Hvað valáfangi sem hún tók í Matlab (forritunarmáli) varð til þess að kveikja áhuga á tölvunarfræði • Hvað það er dýrmæt reynsla að fá sumarstörf með háskólanámi sem tengjast náminu • Lífið í New York og hvað það opnar sjóndeildarhringinn að stunda nám með fólki sem kemur frá öllum heimshornum • Hvað það er spennandi að vera í tölvunarfræðinámi nú þegar gervigreind er að verða stærri hluti af lífi fólks • Kröfurnar í náminu í Columbia • Hvernig hugmyndin um Ada konur (⁠@ada_konur⁠) fæddist og þá spennandi tíma sem eru framundan í þróun miðilsins • Hvað það er gefandi að kynna möguleika tækninnar fyrir yngri kynslóðum og sýna fyrirmyndir • Hvað það er orkugefandi að fara á Crossfit æfingu og fara í sund þegar hún er á Íslandi en að aldrei skuli vanmeta slökun með ís og Netflix Í þættinum minnist Helena á bók sem hún mælir með AI 2041 eftir Kai-Fu Lee og Chen Qiufan Sýn er styrktaraðili þáttarins

19. Helena S. Jónsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Columbia háskóla

View more comments
View All Notifications