Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
15. Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi, stofnandi og eigandi Mennskrar ráðgjafar
15. Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi, stofnandi og eigandi Mennskrar ráðgjafar

15. Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi, stofnandi og eigandi Mennskrar ráðgjafar

00:55:41
Report
Við bjóðum velkomna Margréti Dóru Ragnarsdóttur sem alltaf er kölluð Magga Dóra. Hún lauk grunnnámi í sálfræði frá Háskóla Íslands og meistaranámi í tölvunarfræði frá sama skóla árið 2003. Hún á að baki fjölbreyttan starfsferil bæði hér á landi og í Bandaríkjunum og starfaði meðal annars hjá  hönnunarstofunni Mad*Pow í Boston í 6 ár við notendarannsóknir og stafræna vegferð stórra fyrirtækja. Á Íslandi starfaði Magga Dóra m.a. fyrir OZ og Símann ásamt því að vera aðjúnkt við Háskóla Íslands. Í dag rekur Magga Dóra fyrirtækið Mennska ráðgjöf, þar sem öll verkefni eru unnin út frá sjónarhóli þess sem verður fyrir áhrifum tækninnar, meðfram því að kenna þjónustu- og upplifunarhönnun við tölvufræðideild Háskólans í Reykjavík.  Í þættinum ræða Hildur og Magga Dóra meðal annars:  Bankastýrudrauma bernskunnar  Hvað varð til þess að hún valdi að fara í sálfræði og hvernig það nám hefur verið góður grunnur fyrir allt sem á eftir kom  Hvernig tölvunarfræðin og sálfræðin spiluðu saman og nördinn fékk að blómstra Tímann og „meistaranámið“ hjá OZ og þau öguðu vinnubrögð sem voru viðhöfð hjá fyrirtækinu  Hvað það er gefandi að kenna og kveikja áhuga nemanda  Árin og verkefnin hjá Mad*Pow og lífið í Boston  Verkefnið MPACT og hvernig þau unnu borðspil sem hjálpaði fyrirtækjum að vinna með persónur til að nota í hugbúnaðarþróun  Stofnun Mennskrar ráðgjafar, sérhæfingu fyrirtækisins og þau fjölbreyttu verkefni sem fyrirtækið er að sinna  Hvað það er gefandi að hafa jákvæð áhrif á umhverfið í kringum sig með tækni  Ákvörðunina um hætta að tala um að hafa „brjálað að gera“- að hafa frelsi til að sinna fjölskyldu og vinum en sinna á sama tíma gefandi verkefnum  Hvað það er nærandi að spila skrafl, fara á tónleika og í leikhús og hitta góða vini Þátturinn er í boði: Geko, Taktikal og Tern Systems

15. Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi, stofnandi og eigandi Mennskrar ráðgjafar

View more comments
View All Notifications