Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
17. Björgheiður Margrét Helgadóttir, sérfræðingur í sjálfbærniráðgjöf hjá EY á Íslandi
17. Björgheiður Margrét Helgadóttir, sérfræðingur í sjálfbærniráðgjöf hjá EY á Íslandi

17. Björgheiður Margrét Helgadóttir, sérfræðingur í sjálfbærniráðgjöf hjá EY á Íslandi

01:09:20
Report
Við bjóðum velkomna Björgheiði Margréti Helgadóttur. Björgheiður lauk BS gráðu í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 og meistaragráðu í sömu grein frá HR árið 2016. Eftir útskrift starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Landlæknisembættinu, sem forritari hjá Annata og sérfræðingur í upplýsingatækni hjá Innnes. Árið 2019 réði hún sig sem verkefnastjóra í verkfræðideild hjá Alvotech þar sem hún starfaði þar til í september í fyrra þegar hún réði sig sem sérfræðing í sjálfbærniráðgjöf hjá EY á Íslandi þar sem hún leggur áherslu á félagslega hluta sjálfbærni svo sem mannréttindi og jafnrétti. Með vinnu stundar Björgheiður einnig diplomanám í hagnýtri jafnréttisfræði við Háskóla Íslands. Í þættinum ræða Hildur og Björgheiður meðal annars: Hvað það mótaði hana að alast upp á landsbyggðinni Hvað varð til þess að hún valdi að fara í heilbrigðisverkfræði eftir að hafa stefnt á nám í læknisfræði Hvað það kom henni á óvart hvað forritun reyndist skemmtileg Stjórnarsetuna í UAK og allar þær flottu fyrirmyndir sem hún kynntist þar Þegar hún klessti á vegg og þurfti að forgangsraða öllu upp á nýtt Áhættuna sem fylgir fullkomnunaráráttu og það „mental load“ sem verður að þriðju vaktinni Starfið hjá EY og hvað sjálfbærni snýst um Hvað hún brennur fyrir jafnréttismálum sem varð til þess að hún er í námi með vinnu í HÍ Hvað hugleiðsla og morgunjóga er besta leiðin til að byrja daginn ef mögulegt er Björgheiður minnist á tvo hlaðvarpsþætti sem hún mælir með: Karlmennskan #9 Mental load Þegar ég verð stór Þátturinn er í boði: Geko - Specialists in Innovation Talent, Taktikal og Tern Systems

17. Björgheiður Margrét Helgadóttir, sérfræðingur í sjálfbærniráðgjöf hjá EY á Íslandi

View more comments
View All Notifications