Login to make your Collection, Create Playlists and Favourite Songs

Login / Register
80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK
80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK

80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK

00:00:01
Report
Viðmælandi þáttarins er Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLK. Fyrirtækið er vaxandi íslenskt hönnunarmerki sem hannar og framleiðir vörur úr endurnýjanlegu efni. Ragna er fædd árið 1973 og lá leið hennar í Menntaskólann við Hamrahlíð og síðan lauk hún BA námi í mannfræði frá Háskóla Íslands og starfaði við blaða- og fréttamennsku um árabil. Ragna lauk því næst MSc gráðu í alþjóðaviðskiptum og tungumálum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn (CBS). Eftir útskrift stofnaði hún ráðgjafafyrirtæki með áherslu á samfélagsábyrgð og sjálfbærni áður en hún gerðist yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar og síðar yfirmaður samfélagsábyrgðar Landsvirkjunar. Árið 2015 söðlaði hún síðan um og stofnaði hönnunarmerkið FÓLK. Ragna Sara hefur alltaf látið sig umhverfis- og mannréttindamál sig varða og er hún til að mynda fyrrum formaður stjórnar UN Women á Íslandi og varaformaður stjórnar Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð.Þessi þáttur er í boði KPMG.

80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK

View more comments
View All Notifications